Sálmabók

603. Ó, Drottinn, ég vil aðeins eitt

1 Ó, Drottinn, ég vil aðeins eitt:
Að efla ríki þitt.
Ó, þökk, að náð sú var mér veitt
sem vakti hjarta mitt.
Ég verður, Jesú, ekki er
að eiga' að vera' í þínum her
en vinarnafn þú valdir mér,
mig vafðir blítt að hjarta þér,
ó, hjálpa mér
að hlýðnast eins og ber.

2 Ó, lát mig fá að finna ljóst
hve fólksins neyð er sár.
Mér gef þinn ástareld í brjóst
og einlæg hryggðartár.
Í ljósi þínu lát mig sjá
hvern lýð sem neyð og heiðni þjá
því neyðin hans er hróp frá þér
að hjálpa - eins og bauðstu mér -
að dauðastund
með djarfri fórnarlund.

3 Þá eitt ég veit: Mitt auga sér
þá undraverðu sýn
er langri ævi lokið er
og líf og kraftur dvín:
Ég sé þitt ríki sigur fær,
til sérhvers lýðs þitt frelsi nær
og þessi mikli helgra her
sem hjálp og lífið fann í þér,
þig, líknin blíð,
mun lofa alla tíð.

T Karl L. Reichelt 1912 – Bjarni Eyjólfsson, 1959 – Sb. 1972
Din rikssak, Jesus, være skal
L Michael Haydn 1795 – Vb. 1976
Hier liegt vor deiner Majestät
Eldra númer 305
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is