Sálmabók

609. Það sem brestur bindur Jesús saman

1 Það sem brestur bindur Jesús saman,
bara hann fær læknað hjartasár.
Jesús þekkir huga' okkar og hjarta,
hann mun þerra hvert eitt sorgartár.
Far til þeirra' er bera þungar byrðar,
boða þeim Guðs kærleika og sátt,
segðu þeim frá gæðum lífs og gleði,
gjöfunum sem þú í Kristi átt.

2 Breytt hann illu getur til hins góða,
gleði veitir hann í sorgar stað.
Jesús kom með eilíft líf til allra,
aðeins þarf að segja mönnum það!
Allir þurfa´ að eignast þessa gleði,
öllum sami réttur til þess ber,
rík sem fátæk, ung sem eldri heyri:
Elska Guðs í Kristi nægir þér!

3 Fara skaltu' er frelsarinn þig kallar,
flyt þú öðrum von sem gaf hann þér.
Það sem brestur bindur Jesús saman,
börn sín leiðir aftur heim með sér.
Allir þurfa´ að eignast þessa gleði,
öllum sami réttur til þess ber,
rík sem fátæk, ung sem eldri heyri:
Elska Guðs í Kristi nægir þér!

T Haldis Reigstad 1985 – Guðlaugur Gunnarsson 2004
Det som brest kan Jesus binda saman
L Mons L. Takle 1985
Det som brest kan Jesus binda saman

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is