Sálmabók

627. Hvar finnur sá í veðrum var

Í kirkju

1 Hvar finnur sá í veðrum var
sem villtur gengur freðna jörð
og geig í brjósti ber?
Hvar leita skal, á flóttaför,
:,: að friði – er það hér? :,:

2 Hvar fær hinn sjúki sárabót
og sorgarbarnið huggun þá
sem eigi blekking er?
Hvar finnur sekur sannan vin
:,: og samúð – er það hér? :,:

3 Hvar gefst þeim aldna athvarf tryggt
og ungum leiðsögn fram um veg?
Þeim von sem vonlaus er?
Hvar kynnist maður miskunn Guðs
:,: og mildi – er það hér? :,:

4 Hvar hlýtur órór andi svör
sem ævilangt um sannleik spyr
og efans byrði ber?
Hvar leita skal, um langa nótt,
:,: að ljósi? Það er hér. :,:

T Kristján Einarsson frá Djúpalæk 1987
L Jón Hlöðver Áskelsson 1987

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is