Sálmabók

650. Jarðnesk ljós við lífsins brautir

1 Jarðnesk ljós við lífsins brautir
lýsa skammt og slokkna fljótt,
fleygar stundir, stuttir dagar
stefna greitt í hinstu nótt.
Drottins Jesú dagur ljómar,
dýrð hans páskasólar við mér skín,
hann mig frelsar, líknar, leiðir,
lýsir veginn heim til sín.

2 Ljúft og gott er heim að halda.
Hvar er betra' en Guði hjá?
Þar er varðveitt allt sem ann ég,
öll þar rætist hjartans þrá.
Drottins Jesú ...

3 Þessa heims mig hefur blessað
heilög mildi frelsarans,
einum Guði er að þakka
allt sem gefur jörðin hans.
Drottins Jesú ...

4 Hana kveð ég, hún mér býður
hvíld og svefn við skautið sitt,
Kristur vakir hjá og helgar
himni sínum lífið mitt.
Drottins Jesú ...

5 Ævi mína' og eilífð blessar
upprisunnar trú og von,
bæði lífs og liðnum skín mér
ljósið heims, Guðs einkason.
Drottins Jesú ...

T Sigurbjörn Einarsson 1997 – Sb. 1997
L Robert Lowry 1864 – Sb. 1997
BEAUTIFUL RIVER / Shall We Gather at the River
Eldra númer 710
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is