Sálmabók

656. Ó, Drottinn Guð, mig læra lát

1 Ó, Drottinn Guð, mig læra lát
hér að dvelja, daga' að telja,
hafa' á mínum gjörðum gát.

2 Sjá, ævin líður furðu fljótt,
sólin hnígur, húmið stígur.
Senn er komin svartanótt.

3 Sem þverhönd ein er ævi vor.
Líkur hjómi lífs er blómi,
fánýt öll vor ævispor.

4 Sem skuggi líður lífið manns,
hraðfær straumur, hverfull draumur,
þannig öll er ævin hans.

5 Ég gestur er í heimi hér,
tíðin líður, boð ei bíður.
Senn ég heim til feðra fer.

6 Ó, ljúfi faðir, lít til mín
að ég megi eg þótt deyi
koma heim til þeirra' og þín.

T Valdimar Briem, 1912 – Sb. 1945
L Bæheimsbræður 1566 – JH 1885
Eldra númer 413
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is