Sálmabók

690. Þú, Guð minn, er gafst mér svo mikið

Ákall

1 Þú, Guð minn, er gafst mér svo mikið,
ég gladdist og hélt fyrir vikið
:,: að lífið æ léki við mig. :,:

2 Svo dimmdi og dapur ég sagði,
úr dimmunni hrópaði’ að bragði:
:,: Þú, Alvaldur, yfirgafst mig! :,:

3 Því dimman mig dauðhræddan nísti.
Ó, Drottinn, þá ekkert mér lýsti.
:,: Ég, skapari, skil ekki þig. :,:

4 En þú varst svo þrúgandi hljóður
sem þó varst mér áður svo góður.
:,: Æ, lýstu mér, lausnari minn. :,:

5 Guð, sefaðu svíðandi hjarta
að sjái ég ljósið þitt bjarta
:,: og gef mér þinn græðandi frið. :,:

T Sigurður Pálsson 2009 – Vb. 2013
L Margrét Kristín Sigurðardóttir 2009 – Vb. 2013
Eldra númer 924
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is