Sálmabók

696. Þagnað er heimsins harkið strítt

1 Þagnað er heimsins harkið strítt,
hljóður er mór og bær.
Tunglið úr skýi brosir blítt
og blikar stjarnan skær.

2 Hljóðlát er tjörnin, tær og slétt,
tindrar þar stjörnusafn.
Vængir af síki lyftast létt,
þeir lofa Herrans nafn.

3 Allt er svo kyrrt og allt svo hljótt,
upphiminn, jörð og hlein.
Vertu því, brjóst mitt, vært og rótt
svo víki kvíðans mein.

4 Sæstu, mitt hjarta, sérhvern við
sem þig ei skilið fær.
Engill sem boðar öllum frið
fer um í kvöld þér nær.

5 Ókunnan flestum finnur þú
friðarins engil þann.
Baðaður stjörnubliki nú
ert bæði þú og hann.

6 Boðar hann kvöldsins bænarmál:
Boðar á jörðu frið.
Himneskan frið í hverja sál
þótt horfi ólíkt við.

7 Friður með öllum fjær og nær,
friður með þeim ég ann,
þeim sem í dagsins þys er kær
og þeim ég aldrei fann.

T Bernhard S. Ingemann 1822 – Böðvar Guðmundsson, 2009
Fred hviler over land og by
L Böðvar Guðmundsson, 2009

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is