Sálmabók

7. Við kveikjum einu kerti á

1 Við kveikjum einu kerti á.
Hans koma nálgast fer
sem fyrstu jól í jötu lá
og Jesúbarnið er.

2 Við kveikjum tveimur kertum á
og komu bíðum hans
því Drottinn sjálfur soninn þá
mun senda' í líking manns.

3 Við kveikjum þremur kertum á
því konungs beðið er
þótt Jesús sjálfur jötu´ og strá
á jólum kysi sér.

4 Við kveikjum fjórum kertum á.
Brátt kemur gesturinn
og allar þjóðir þurfa' að sjá
að það er frelsarinn.

T Sigurd Muri 1963 – Lilja S. Kristjánsdóttir 1979 – Vb. 1991
L Emmy Köhler 1898 – Vb. 1991
Nu tändas tusen juleljus
Eldra númer 560
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is