Sálmabók

71. Nú árið er liðið

1 Nú árið er liðið í aldanna skaut
og aldrei það kemur til baka,
nú gengin er sérhver þess gleði og þraut,
það gjörvallt er runnið á eilífðar braut
en minning þess víst skal þó vaka.

2 En hvers er að minnast og hvað er það þá
sem helst skal í minningu geyma?
Nú allt er á fljúgandi ferð liðið hjá,
það flestallt er horfið í gleymskunnar sjá.
En miskunnsemd Guðs má ei gleyma.

3 Hún birtist á vori sem vermandi sól,
sem vöxtur í sumarsins blíðum,
í næðingum haustsins sem skjöldur og skjól,
sem skínandi himinn og gleðirík jól
í vetrarins helkuldahríðum.

4 Hún birtist og reynist sem blessunarlind
á blíðunnar sólfagra degi,
hún birtist sem lækning við böli og synd,
hún birtist þó skærast sem frelsarans mynd
er lýsir oss lífsins á vegi.

5 Nú Guði sé lof fyrir gleðilegt ár
og góðar og frjósamar tíðir
og Guði sé lof því að grædd urðu sár
og Guði sé lof því að dögg urðu tár.
Allt breyttist í blessun um síðir.

6 Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár
og góðar og blessaðar tíðir,
gef himneska dögg gegnum harmanna tár,
gef himneskan frið fyrir lausnarans sár
og eilífan unað um síðir.

T Valdimar Briem – Sb. 1886
L Andreas P. Berggreen 1873 – JH 1885
Jeg lever og ved hvor længe fuldtrøst
Sálmar með sama lagi 648
Eldra númer 98
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is