Sálmabók

776. Sjá, bát á bárum hrakti

1 Sjá, bát á bárum hrakti,
um borð svaf Jesús þar.
Það ógn og angist vakti
að allt í hættu var.
Þá bregður Jesús blundi
og býður: Læg þig, haf.
Hvert ólag óðar hrundi
og ágætt veður gaf.

2 Guðs undur enn þá gerast
og öll á réttri tíð.
Um höfin hjálp mun berast
er harðna veður stríð.
Ei kvarta þarf né kveina
sé Kristur með um borð.
Oft sjómenn sjá og reyna
hans sígilt máttarorð.

3 Ef hann má fleyi fylgja
oss farnast vel mun þá
þótt rishá brotni bylgja
og brimi lífs um sjá.
Í gegnum hafdyn hranna
vér heyrum glöggt hans raust.
Hann, lífsins ljósið sanna,
vor leiðir fley í naust.

4 Er syrtir lífs á leiðum
oss löngum brestur mátt.
Á voðans vegi breiðum
oss verður ráðafátt.
Allt sýnist vera að sökkva
og sólar hverfa lönd
en yfir djúpið dökkva
þá Drottinn réttir hönd.

5 Er héðan hinsta sinni
skal halda fleyi' á dröfn,
þá vef oss verndan þinni
og varðveit oss í höfn.
Ef þú við stýri stendur
oss stefnan fatast ei.
Þá brosa bjartar strendur
í blíðum anganþey.

T Elias Blix, 1891 – Valdemar V. Snævarr, 1983 – Vb. 1991
Jesus stiller stormen / Ein båt i stormen duva
L Leif Ofstad 1956, 1982 – Vb. 1991
Ein båt i stormen duva
Eldra númer 597
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Matt. 8.23–27

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is