Sálmabók

781. Við erum fólk í förum

1 Við erum fólk í förum.
Ef ferðin er erfið og löng
við setjumst við læki og lindir
:,: og leitum þín, Guð, í söng. :,:

2 Við erum fólk í förum
á flótta, í óró og nauð
en finnumst í sátt þegar saman
:,: er safnast um vín og brauð. :,:

3 Við erum fólk í förum
og færumst í trúnni æ nær
því heima sem heimfús leitar
:,: og himinninn okkur ljær. :,:

T Britt G. Hallqvist 1981 – Kristján Valur Ingólfsson 2002 – Vb. 2013
Vi är ett folk på vandring
L Egil Hovland 1981 – Vb. 2013
Vi er et folk på vandring
Eldra númer 901
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is