Sálmabók

89b. Lærdómstími ævin er

1 Lærdómstími ævin er.
Ó, minn Drottinn, veit ég geti
numið allt sem þóknast þér,
þína speki dýrast meti.
Gef ég sannleiks gulli safni,
gef í visku' og náð ég dafni.

2 Vinnutími ævin er.
Ár og síð á lífstíð minni,
Drottinn minn, til dýrðar þér
dyggilega gef ég vinni.
Gef mín störf til góðs æ leiði,
gef þau út þitt ríki breiði.

3 Reynslutími ævin er.
Ó, minn Guð, mig veikan leiddu
gegnum böl sem mætir mér,
mína leið til heilla greiddu.
Veit í trú ég vakað fái,
veit ég sigri góðum nái.

4 Náðartími ævin er.
Að því, Drottinn, lát mig hyggja
sú að nauðsyn mest er mér
miskunn þína' í tíma' að þiggja.
Yfirbótar unn mér, Herra,
ævidagar fyrr en þverra.

T Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
L Atli Heimir Sveinsson 1991
Eldra númer 121
Eldra númer útskýring T

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is