Samvera 67. ára og eldri.

Samvera 67. ára og eldri.

Samvera 67. ára og eldri fyrir þau sem vilja rjúfa einangrun sína, hitta aðra og lyfta sér aðeins upp í hversdeginum.

Ýmsar aðferðir leiklistar, öndunar og einfaldra hreyfinga og samræðuaðferða verða prófaðar.

Fáum galnar, frábærar, kjánalegar og dásamlegar hugmyndir bara við það að láta niður varnir okkar og vera skemmtileg nú eða bara alls ekki skemmtileg (engar kvaðir) í 60 mínútur tvisvar í viku þriðjudaga og fimmtudaga klukkan 11.00.

Einnig er boðið upp á einstaklingsviðtöl sem hér segir: Þriðjudaga klukkan 11.10 og 12.20 miðvikudaga 10.00, 11.10 og 12.20 og fimmtudaga 11.00 og 12.10. Hvert viðtal er 60 mínútur. Þau þarf að panta í síma 8616756.

Gjaldfrjálst fyrir eldri borgara og öryrkja og er hjá Sálgæslu- og fjölskylduþjónustu kirkjunnar.

Umsjón:

Ásdís Magnúsdóttir guðfræðingur, sálgætir og listgreinakennari.


Sálgæslu- og fjölskylduþjónusta kirkjunnar er til húsa á neðri hæð safnaðarheimilis Háteigskirkju, Háteigsvegi 27-29.