Gleði og gaman á fermingarhátíð

31. janúar 2018

Gleði og gaman á fermingarhátíð

Í fyrsta skiptið héldu þjóðkirkjusöfnuðurnir í Hafnarfirði og Garðabæ sameiginlega fermingarhátíð sunnudaginn 28. janúar og hana sóttu á fjórða hundrað fermingarbörn ásamt fermingarfræðuum og prestum . Svo fjölmenn var hátíðin að það þurfti þrjár kirkjur til að rúma alla dagskrána og voru þær allar iðandi af lífi og glöðum fermingarbörnum.

Dagskrá fyrir pilta fór fram í Hafnarfjarðarkirkju og daskrá fyrir stúlkur í Vídalínskirkju, en svo var sameiginleg kvöldvaka í Víðistaðakirku. Yfirskrift hátíðarinnar var “Betri eru tveir en einn” (Prédikarinn 4:9) og þemað var vinátta og kærleikur. ´Hátíðin hófst með samhristing og svo tóku fræðslan við. Góðir gestir, Brynja Dan Gunnarsdóttir og Guðjón Reykdal Óskarsson komu í heimsókn og ræddu við börnin um líf sitt og hvernig við sýnum vinum okkar stuðning í verki. Einnig var horft á stuttmynd um óvenjulega vináttu, farið í leiki sem reyna á traust og hvernig við brjótum ísinn í samskiptum. Þá var frjáls tími sem sumir nýttu til að slaka á, spila eða taka þátt í brandarakeppni. Í kvöldmat var boðið var upp á pítsur og runnu þær ljúflega niður hjá þessum stóra hópi. Svo var hópunum ekið í rútum í Víðistaðakirkju, þar sem fram fór sameiginleg kvöldvaka. Hljómsveitin Sálmari tók á móti þeim með fjörugri tónlist, sungið og farið í leiki. Einnig kom Jón Jónsson, tónlistarmaður, og tók nokkur lög með fermingarbörnunum. Hátíðina sóttu fermingarbörn frá Ástjarnar-, Bessastaða-, Hafnarfjarðar-, Vídalíns- og Víðistaðakirkjum.  Fleiri myndir má sjá hér
    Sr. Sigurður Már

    Sr. Sigurður Már ráðinn sóknarprestur

    23. apr. 2025
    ...við Seljaprestakall
    Sr. Hjalti Jón Sverrisson

    Sr. Hjalti Jón ráðinn

    23. apr. 2025
    ...fangaprestur þjóðkirkjunnar
    Sr. Gunnbjörg Óladóttir

    Sr. Gunnbjörg Óladóttir ráðin

    23. apr. 2025
    ...héraðsprestur í Suðurprófastsdæmi