Átta umsækjendur um embætti prests við Tjarnaprestakall

12. september 2018

Átta umsækjendur um embætti prests við Tjarnaprestakall

Embætti prests við Tjarnaprestakall, Kjalarnesprófastsdæmi, var auglýst laust til umsóknar og rann umsóknarfrestur út þann 22. maí sl.

Átta umsækjendur sóttu um embættið, en þeir eru í stafrófsröð;

Arnór Bjarki Blomsterberg, mag. theol.
Bryndís Svavarsdóttir, cand. theol.
Sr. Gunnar Jóhannesson
Sr. Hildur Björk Hörpudóttir
Jónína Ólafsdóttir, mag. theol.
Sr. Ólafur Jón Magnússon
Sr. Sveinn Alfreðsson
Sr. Ursula Árnadóttir

Biskup Íslands skipar í embættið frá 1. ágúst nk. til fimm ára. Umsóknir hljóta umfjöllun matsnefndar um hæfni til prestsembættis og að fenginni niðurstöðu hennar fjallar kjörnefnd prestakallsins um umsóknirnar. Kjörnefnd kýs að því búnu milli umsækjendanna og skipar biskup Íslands þann umsækjanda sem hlýtur löglega kosningu.
  • Embætti

Söngvahátíð 7.jpg - mynd

Söngvahátíð barnanna á Akureyri og í Reykjavík

23. apr. 2024
...börnin syngja í útvarpsmessu á sumardaginn fyrsta
Bænagangan 3.jpg - mynd

Bænagangan 2024

23. apr. 2024
...á sumardaginn fyrsta