Prestsstarf á Selfossi laust

21. janúar 2020

Prestsstarf á Selfossi laust

Laugardælakirkja í Selfossprestakalli

Biskup Íslands óskar eftir presti til þjónustu í Selfossprestakalli, Suðurprófastsdæmi. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eða í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að niðurstaða um ráðningu liggur fyrir.

Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings „um val og veitingu prestsembætta“ nr. 144/2016 og „um presta“ nr. 1011/2011, svo og „leiðbeinandi reglna biskups Íslands fyrir umsækjendur um laus prestsembætti“ frá 2017.

Í Selfossprestakalli, eru fjórar sóknir, hver með sína sóknarkirkju, þ.e. Selfosssókn, Laugardælasókn, Hraungerðissókn og Villingaholtssókn. Selfossprestakall tilheyrir tveimur sveitafélögum, Árborg og Flóahreppi, með tæplega 10.800 íbúa, þar af 9.246 sóknarbörn. Í prestakallinu starfa sóknarprestur og prestur, auk þess sem héraðsprestur hefur starfað við prestakallið. Sóknarprestur og prestur skulu, undir forystu prófasts, skipta formlega með sér verkum.

Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall án fækkunar presta. Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing er varða m.a. Selfossprestakall og sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla í prófastsdæminu, hljóti þær samþykki kirkjuþings.

Umsóknarfrestur er til miðnættis fimmtudaginn 6. febrúar 2020.

Sjá nánar hér.

hsh


  • Auglýsing

  • Frétt

  • Menning

  • Samfélag

  • Umsókn

  • Menning

  • Samfélag

Sr. Stefán Már.jpg - mynd

Ályktun Presta- og djáknastefnu 2024

18. apr. 2024
...um mikilvægi barna- og unglingastarfs
Úlfastundir 5.jpg - mynd

Úlfastundir í Lágafellssókn

18. apr. 2024
...boðið upp á slátur og graut