Húsavík laus til umsóknar

22. júní 2020

Húsavík laus til umsóknar

Húsavíkurkirkja - mynd: Sigurður Herlufsen

Biskup Íslands óskar eftir sóknarpresti til þjónustu í Húsavíkurprestakalli, Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi.

Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. september, eða í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að niðurstaða um ráðningu liggur fyrir.

 

Prestakallið Í Húsavíkurprestakalli er ein sókn, Húsavíkursókn, sem nær yfir Húsavík, ásamt Tjörnesi og hluta af Reykjahverfi. Í prestakallinu er ein kirkja, Húsavíkurkirkja. Sóknarprestur hefur skrifstofuaðstöðu í Bjarnahúsi, safnaðarheimili kirkjunnar. Prestsetur fylgir ekki prestakallinu. Sóknarprestur annast helgistundir og messur á dvalarheimilinu Hvammi. Vísað er til þarfagreiningar sóknar prestakallsins varðandi frekari upplýsingar um starfið og starfsumhverfið. Þarfagreiningin er birt hér í framhaldi af auglýsingunni.

Allar gildar umsóknir fara til þriggja manna matsnefndar sem metur hæfni umsækjenda, sbr. 5. og 6. gr. „Starfsreglna um val og veitingu prestsembætta...“

Matsnefnd velur að jafnaði fjóra hæfustu umsækjendurna en þó aldrei fleiri en fimm og skilar skýrslu þar að lútandi til biskups.

Kjörnefnd Húsavíkurprestakalls kýs sóknarprest úr hópi umsækjenda, að loknu valferli kjörnefndar, sbr. „Starfsreglur um val og veitingu prestsembætta...“

Fyrirvari Áskilinn er réttur til að skilgreina viðbótarskyldur við prófastsdæmið og önnur prestaköll innan þess, sem og við Þjóðkirkjuna – Biskupsstofu og aðra kirkjulega aðila. Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall án fækkunar presta. Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing er varða m.a. Húsavíkurprestakall og sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla í prófastsdæminu, hljóti þær samþykki kirkjuþings.

Vakin er athygli á breyttri réttarstöðu starfsmanna kirkjunnar, þar með talið presta, sbr. viðbótarsamning íslenska ríkisins og Þjóðkirkjunnar frá 6. september 2019. Samningurinn hefur í för með sér breytingar á 22. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, en í umræddri grein voru prestar Þjóðkirkjunnar tilgreindir sem embættismenn ríkisins. Eftir breytinguna eru prestar almennir starfsmenn Þjóðkirkjunnar – Biskupsstofu.

Nánari upplýsingar, t.d. starfskjör og helstu reglur og skyldur varðandi starfið, eru veittar hjá sr. Jóni Ármanni Gíslasyni, prófasti prófastsdæmisins, s. 866 2253 og hjá Þjóðkirkjunni - Biskupsstofu, s. 528 4000.

Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudaginn 6. júlí 2020.

Sjá nánar hér.

hsh
  • Frétt

  • Safnaðarstarf

  • Samfélag

  • Starf

  • Auglýsing

Söngvahátíð 7.jpg - mynd

Söngvahátíð barnanna á Akureyri og í Reykjavík

23. apr. 2024
...börnin syngja í útvarpsmessu á sumardaginn fyrsta
Bænagangan 3.jpg - mynd

Bænagangan 2024

23. apr. 2024
...á sumardaginn fyrsta