Göngum til liðs við kirkjuna

25. nóvember 2020

Göngum til liðs við kirkjuna

Sr. Karl V. Matthíasson fyrir utan Guðríðarkirkju í GrafarholtiUndanfarið hefur mátt sjá auglýsingar í strætisvagnaskýlum borgarinnar þar sem fólk er hvatt til að uppfæra trúfélagaskráningu sína meðan það bíður eftir strætó. Mikið virðist liggja á. Þar er og fullyrt að ekkert kosti að skrá sig í viðkomandi trúleysissamtök og gefið ef til vill í skyn að það kosti að skrá sig í önnur trúfélög. Það er ósatt. Ekkert kostar að skrá sig í trúfélag.

Svo er spurt hvert viðkomandi vilji að sóknargjöldin renni.

Það er ljóst í þjóðkirkjunni hvert þau renna og enginn feluleikur með það.

Kirkjan.is birtir að gefnu tilefni bréf frá sóknarpresti Guðríðarkirkju sem hann birtir á heimasíðu sinni  í dag.

Sr. Karl V. Matthíasson skrifar:

Kæru vinir í Grafarholtsprestakalli
Guðríðarkirkja er sóknarkirkja íbúanna í Grafarholti, Úlfarsárdal og Reynisvatnsási. Þau sem eru í Þjóðkirkjunni eiga Guðríðarkirkju og standa undir rekstri hennar. Þau greiða með sóknargjöldum sínum viðhald byggingarinnar, laun kirkjuvarðar, organista, æskulýðsprests og barnakórstjórans. Margt annað er greitt með sóknargjöldunum eins og til dæmis í líknarsjóð kirkjunnar sem hefur eftir föngum stutt við efnaminna fólk með Bónuskortum.
Nú sjáum við sem erum í Þjóðkirkjunni ágengar auglýsingar og harðar hvatningar um að við sem erum í Þjóðkirkjunni yfirgefum hana.
Ég hvet ykkur öll til að styðja við starf kirkjunnar í hverfinu ykkar og allt það sem hún hefur upp á að bjóða. Þess vegna er það mjög mikilvægt að sem flestir er búa í prestakallinu séu skráðir í Þjóðkirkjuna.
Kirkjan hefur það hlutverk að boða orð Guðs, um eilíft líf og að við sýnum hvert öðru kærleika og fyrirgefningu meðan við lifum hér.
Ef þú ert ekki í Þjóðkirkjunni og vilt styðja við starf Guðríðarkirkju hvet ég þig til að ganga í Þjóðkirkjuna. Guð blessi þig.
            Karl V. Matthíasson, sóknarprestur Grafarholtsprestakalls.

hsh
  • Hjálparstarf

  • Menning

  • Safnaðarstarf

  • Sálgæsla

  • Samfélag

  • Trúin

  • Frétt

Sr. Stefán Már.jpg - mynd

Ályktun Presta- og djáknastefnu 2024

18. apr. 2024
...um mikilvægi barna- og unglingastarfs
Úlfastundir 5.jpg - mynd

Úlfastundir í Lágafellssókn

18. apr. 2024
...boðið upp á slátur og graut