Má funda

28. apríl 2021

Má funda

Blómlegt starf safnaðanna er tekið út á vorin

Vorið er oft fundartími í kirkjunni.

Aðalsafnaðarfundir eru gjarnan haldnir á vorin en það eru mikilvægir fundir þar sem gerð er grein fyrir starfsemi og rekstri sóknanna á liðnu starfsári, reikningar afgreiddir, kosið í sóknarnefnd og margvísleg mál rædd.

Héraðsfundi á að halda fyrir 15. júní samkvæmt starfsreglum. Héraðsfundur er aðalfundur prófastsdæmisins og þar er rætt um mál sem snúast um starfsemi þjóðkirkjunnar í viðkomandi prófastsdæmi.

Kórónuverirufaraldur hefur þokað mörgum fundum yfir í rafrænt form. Það eru öðruvísi fundir en þeir þar sem fólk hittist augliti til auglitis.

Nú hefur verið kveðið upp úr með að héraðsfundi, aðalsafnaðarfundi og aðra slíka fundi megi halda og geta allt að 100 manns í einu sótt þá gegn því að uppfyllt séu öll skilyrði sem fram komu í reglugerð heilbrigðisráðuneytisins og sem biskup ítrekaði fyrir nokkru í bréfi sínu til  til presta, djákna, organista, sóknarnefnda og útfararstjóra.

Ef ekki er hægt að uppfylla skilyrðin verða fundir að fara fram í samræmi 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 404/2021 þar sem segir í 1. ml: „Í takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar á gildistíma þessarar reglugerðar. Með fjöldasamkomum er átt við það þegar fleiri en 20 einstaklingar koma saman, hvort sem er í opinberum rýmumeða einkarýmum.“

Einnig skal í þessu sambandi gætt að ákvæðum 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar þar sem segir: 
„Á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi, meðal annars þeirri sem talin er upp í 3. gr., skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.“

Hollráð
Tilmæli Almannavarna frá 20. apríl 2021 eru engu að síður góð leiðsögn á tíma kórónuveirunnar: „Við höldum mannamótum í lágmarki og ferðumst ekki á milli landshluta nema brýna nauðsyn beri til.“

Starfsreglur um sóknarnefndir

Starfsreglur um héraðsfundi

Reglugerð heilbrigðisráðuneytisins - frá 20. apríl 2021

hsh


  • Frétt

  • Fundur

  • Leikmenn

  • Menning

  • Prestar og djáknar

  • Safnaðarstarf

  • Samfélag

  • Sóknarnefndir

  • Covid-19

Sr. Stefán Már.jpg - mynd

Ályktun Presta- og djáknastefnu 2024

18. apr. 2024
...um mikilvægi barna- og unglingastarfs
Úlfastundir 5.jpg - mynd

Úlfastundir í Lágafellssókn

18. apr. 2024
...boðið upp á slátur og graut