Leiðtogaþjálfun á Austurlandi

15. nóvember 2022

Leiðtogaþjálfun á Austurlandi

Leiðtogaefni á Austurlandi

Farskóli leiðtogaefnanna hefur verið starfræktur í kirkjunni um árabil.

Skólinn er afar mikilvægur hluti af faglegri leiðtogaþjálfun Þjóðkirkjunnar um allt land.

Prestar og leikmenn hitta ungmennin og deila af reynslu sinni sem leiðtogar í kirkjunni.

Um helgina stóð Austurlandsprófastsdæmi fyrir leiðtogaþjálfun í Kirkjumiðstöð Austurlands á Eiðum.

Þátttakendur voru ungmenni á aldrinum 15-17 ára sem hafa verið virk í kirkjustarfi í söfnuðunum sínum um lengri tíma og hafa áhuga á að bæta við sig reynslu og þekkingu sem leiðtogar í kirkjustarfinu.

Gunnfríður Katrín Tómasdóttir er starfandi fræðslufulltrúi Austurlandsprófastsdæmis og hafði hún veg og vanda af dagskránni.

Hún sagði fréttaritara kirkjan.is frá helginni:

"Þessi hópur var einstaklega skemmtilegur og námfús.

Krakkarnir komu frá öllu Austurlandi og þau voru öll sem eitt tilbúin til að reyna sig við verkefni og nýjar aðstæður" segir Gunnfríður.

„Þátttakendur voru 44 og þeim var skipt upp í nokkra hópa sem fengu ólík verkefni.

Til að mynda stóðu þátttakendur sjálfir fyrir allri eldamennsku og þrifum, enda þarf kirkjuleiðtogi að vera liðtækur í því líka.

Fræðslustundir og æfingar snerust m.a. um uppbyggingu helgihalds, samskipti, valdeflingu ungs fólks og trúarleg tákn í umhverfi okkar.


Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir prestur í Egilsstaðaprestakalli tók að sér fræðslu um helgihald kirkjunnar á námskeiðinu.

Sr. Kristín Þórunn sagði:

"Við byrjuðum á því að allir fóru í minni hópa og ræddu um hvað þeim finnst mikilvægast í helgihaldinu og hvaða hughrifum við verðum fyrir þegar við komum í kirkjuna" sagði sr. Kristín.

"Orð eins og kyrrð, friður, bæn og gleði, komu þar oft fyrir.

Það er bjart yfir Þjóðkirkjunni á Austurlandi og framtíðarleiðtogum hennar og von á góðu úr þeim hópi“ sagði sr. Kristín Þórunn að lokum.

slg


  • Fræðsla

  • Kirkjustarf

  • Leikmenn

  • Prestar og djáknar

  • Safnaðarstarf

  • Sálgæsla

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Sjálfboðaliðar

  • Trúin

  • Æskulýðsmál

Addis9.jpg - mynd

Vottar vonar og réttlætis: Árlegur stjórnarfundur Lútherska heimssambandsins

23. jún. 2025
Árlegur stjórnarfundur Lútherska heimssambandsins fór fram dagana 12.–16. júní í höfuðborg Eþíópíu.
Sr. Pétur Ragnhildarson

Sr. Pétur Ragnhildarson ráðinn sóknarprestur

13. jún. 2025
...í Breiðholtsprestakalli
Dómkirkjan í Reykjavík - mynd: hsh

Prestsvígsla í Dómkirkjunni

12. jún. 2025
...sunnudaginn 15. júní