Auglýsing frá kjörstjórn

21. febrúar 2024

Auglýsing frá kjörstjórn

Kjörstjórn hefur sent frá sér eftirfarandi auglýsingu um tilnefningar til biskups Íslands og framlagningu kjörskrár vegna kosningar biskups Íslands, sbr. 9. og 11. gr. starfsreglna um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa nr. 9/2021-2022.

Hver vígður maður sem kosningaréttar nýtur skv. starfsreglum um kosningu biskups Íslands o.fl. hefur rétt til að tilnefna til biskups allt að þrjá einstaklinga sem uppfylla skilyrði til kjörs biskups Íslands.

Kjörgengur til biskups Íslands er hver guðfræðikandídat sem fullnægir skilyrðum til þess að gegna prestsembætti í íslensku þjóðkirkjunni.

Tilnefning til biskups Íslands hefst kl. 12:00 hinn 7. mars 2024 og lýkur kl. 12:00 hinn 12. mars 2024.

Tilnefningin fer fram með rafrænum hætti, sjá https://kirkjan.is/kosning

Rétt til tilnefningar til biskups hafa vígðir einstaklingar sem kosningaréttar njóta í biskupskosningu, þ.e.:

· Biskup Íslands og vígslubiskupar

· Þjónandi prestar og djáknar íslensku þjóðkirkjunnar eða hjá íslenskum söfnuði þjóðkirkjunnar erlendis sem eru í föstu og launuðu starfi

· Þjónandi prestar og djáknar sem lúta tilsjónar biskups Íslands og eru í föstu og launuðu starfi á vegum stofnunar og/eða félagasamtaka hér á landi.

· Prestar og djáknar í tímabundnu leyfi, allt að tveimur árum. Djákni skal vera ráðinn til a.m.k. eins árs eða ótímabundið.

· Prestur sem settur er til þjónustu tímabundið nýtur ekki kosningarréttar nema í þeim tilfellum þar sem ekki er skipaður prestur fyrir.

· Vígðir starfsmenn þjónustumiðstöðvar Þjóðkirkjunnar sem eru í föstu starfi.

Prestar og djáknar sem látið hafa af þjónustu njóta ekki kosningarréttar.

Áætlað er að kosning biskups Íslands hefjist að loknu tilnefningaferli, eða kl. 12:00 hinn 11. apríl 2024 og ljúki kl. 12:00 hinn 16. apríl 2024.

Kosningarétt við kjör biskups hafa vígðir annars vegar og leikmenn hins vegar, sbr. nánar 4. gr. starfsreglna um kosningu biskups Íslands o.fl.

Viðmiðunardagur skilyrða kosningarréttar var 15. febrúar 2024.

Kjörskrá vegna kosningar biskups Íslands er lögð fram 22. febrúar 2024 og birtist á vef þjóðkirkjunnar.

Kjósandi getur kannað á þar til gerðu vefsetri https://kirkjan.is/kjörskrá hvort nafn hans er á kjörskrá við biskupskjör.

Við aðgang að vefsetrinu er notuð almenn innskráningarþjónusta, svo sem rafræn skilríki eða Íslykill.

Athugasemdir vegna kjörskrárinnar skulu berast kjörstjórn eigi síðar en fimm sólarhringum áður en tilnefningar hefjast eða fyrir kl. 12.00 hinn 2. mars 2024.

Athugasemdir skulu sendar á netfangið kirkjan@kirkjan.is.

Um er að ræða endurtekið ferli frá því sem áður var auglýst og fallið var frá af tæknilegum ástæðum skv. ákvörðun kjörstjórnar.

Reykjavík, 20. febrúar 2024

f.h. kjörstjórnar þjóðkirkjunnar

Anna M. Karlsdóttir, formaður.

 

slg


  • Biskup

  • Kosningar

  • Auglýsing

Prestar í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra ásamt fyrirlesurum

Vorfundur presta í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

26. apr. 2024
...síðasti prestafundur sr. Helgu Soffíu sem prófastur
Forsíðumynd-Sumardagurinn fyrst -skrúðganga á kirkjuplani.jpg - mynd

Sumardagurinn fyrsti í Fossvoginum

26. apr. 2024
...fjölsótt dagskrá í kirkjunni
Digraneskirkja

Laust starf

26. apr. 2024
...prests við Digranes- og Hjallaprestakall