Tíu boðorð á 21. öld

Tíu boðorð á 21. öld

Óneitanlega veltir maður því fyrir sér hvort hrunið á Íslandi sé nú ekki gengið eins langt og hægt er. Er hrunið ekki orðið að syndafalli þar sem ríki og kirkja liggja flöt í lágkúra ómenningar og siðleysis. Og hvað er þá til ráða? Dugar að setja fram kröfu um heiðarleika? Getum við innleitt boðorðin tíu sem mælikvarða á almennilegt líf á heimilum, skólum og samfélagi?

Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.

Krafa samtímans er heiðarleiki. Það var sá eiginleiki sem þjóðfundurinn á síðasta ári setti efstan. Það er mælikvarðinn eftir hrunið á stjórnmálamenn, á bankakerfið og á samfélagið. Við setjum dyggðir á oddinn, meir en áður, vegna þess að við höfum reynt að samfélagi okkar stenst ekki án siðferðis. Það hefur líka gerst í skólakerfinu þó að það hafi verið komið fyrir hrunið. Ýmis góð og gagnleg spakmæli eru fest upp á veggi á göngum og skólastofum, börnin okkar eru látin setja sér reglur í leikskólum, jafnvel sett upp umbunarkerfi svo kennarar hlaupa eftir börnunum með verðlaunamiða fyrir góða hegðun, uppbyggingarstefnur eru kynntar, á skipulegan hátt er tekist á við einelti osfrv. Hver er ástæðan önnur en sú að reynslan af frjálsræði, regluleysinu og hömluleysinu hefur leitt okkur í ógöngur? Við þurfum á góðu siðferði að halda til að samfélagið dafni. Ekki hefur kirkjan farið varhluta af spillingu og siðleysi svo það er engin trygging fyrir siðferðinu að menn þykist þjóna Guði í háum embættum og miklum embættisskrúða. Siðferði hefur aldrei verið bundið embættum heldur er persónulegir eiginleikar sem fást ekki nema með iðkun gæskunnar. Óneitanlega veltir maður því fyrir sér hvort hrunið á Íslandi sé nú ekki gengið eins langt og hægt er. Er hrunið ekki orðið að syndafalli þar sem ríki og kirkja liggja flöt í lágkúra ómenningar og siðleysis. Og hvað er þá til ráða? Dugar að setja fram kröfu um heiðarleika? Getum við innleitt boðorðin tíu sem mælikvarða á almennilegt líf á heimilum, skólum og samfélagi?

1.

Kirkjan hefur bent á gömlu gildin, mikilvægi þeirra, og margir hafa áhyggjur af að þessi gömlu boðorð séu gleymd og grafin. Lífsspeki boðorðanna er meira en góð leiðbeining í huga kristinna manna. Þau eru leiðbeiningar skaparans um lífið sem við erum sköpuð til.

Sumir líta svo á að það þurfi að endurnýja boðorðin. Það þarf að sníða þau að nútímanum vegna þess að það er í eðli sínu óþægileg hugsun fyrir nútímamanninn að beygja sig undir reglur sem Guð hefur sett. Boðorðin eins og þau eru finnst eflaust flestum of afdráttarlaus. Við teljum okkur á æðra menningarstígi þar sem ekki á við að segja: Þú skalt ekki...  Menning okkar er háþróaðri en svo að þurfi að tala við þroskaða menn á þann hátt. Þess í stað er komið eitt bann: “Eftir einn ei aki neinn”. Afgangurinn er mildar hvatningar um stundvísi, þolinmæði, umburðarlyndi, glaðværð, um að gera sitt besta, fara að leikreglum í leik og starfi, halda loforð sín, bera umhverfi sitt fyrir brjósti og alltaf, án undantekninga, að sturta niður eftir að hafa verið á klósettinu.

Aðrir telja boðorðin úreltar siðareglur sem hafa enga skírskotun til lífsins lengur. Menn geta ekki séð fyrir sér að boðorð handa hirðingjaþjóð geti átt við samfélag nútímans. Boðorðið um að ágirnast ekki þræl eða ambátt, uxa eða asna, er út úr korti.

Ágætur anglikanskur prédikari J. John sem ég hef verið að skoða andmælir þessu á eftirfarandi hátt:

Skiptu á tjöldunum og íbúðum og húsum, breytum hirðingjaþjóðflokk í starfsmenn í jakkafötum með bindi, eyðimörkinni í borgarstræti og þú sérð að mannlegt eðli er samt við sig. Auðvitað hefur eitthvað breyst. Í stað smellanna í talnagrindinni er komið tifið í nýjustu tölvunum, brakandi uxakerra er orðinn að háþróaðri þotu, en eldur er ennþá eldur, vatn er ennþá vatn og mannkynið er ennþá mannkyn. Bókmenntir fornaldar, biblíulegar og aðrar, sanna að varðandi siðferði hefur mannkynið ekkert breyst í 4000 ár. Við höfum sömu gallanna og forfeður okkar og við þurfum sömu reglur. (J. John. Ten. Linving the Ten Commandments in the 21st Century (2000):14)

2.

Ég er á sama máli. Og rökin eru þessi. Boðorðin standast sem algildar reglur fyrir alla á öllum tímum. Þau staðfesta það grundvallartraust sem gott samfélag byggir á hvort sem það er háþróað tæknilega, ríkt eða fátækt þróunarland. Þau eru grundvöllur að réttri breytni. Það er erfitt að halda því fram í samfélagi standist þar sem ekki er lengur til nein rétt breytni né neinn sannleikur í raun. Í skoðunarkönnunum fyrir rúmum áratug voru Íslendingar mjög svo sveigjanlegir varðandi öll gildi.

En það er einu sinni þannig að við lifum fyrir eitthvað sem við teljum mikilvægt. En það verðmætamat sem við höfum gefið okkur það dæmir okkur vegna þess að við stöndumst ekki eigin kröfur. Tökum bara heiðarleikann sem dæmi. Það er auðvelt að krefja aðra um heiðarleika en stöndumst við sjálf þá kröfu. Þannig dæmir samviskan okkur. Það er vandinn við boðorðin að þau dæma okkur þegar þau skerpa samviskuna. Við viljum frekar laga boðorðin að okkur eða hafna þeim með öllu en að horfast í augu við okkur sjálf. En hvers vegna valda boðorðin þessu innsæi?

3.

Í kvöldtíðinni eða conpletorium hefur kirkjan íhugað í rökkrinu verk sín og játað syndir sína. Það voru til skriftir og skriftaspeglar sem fólk notaði til að prófa sjálft sig og breytni sína. Og boðorðin gegna þar lykilhlutverki vegna þess að þau draga upp fyrir okkur lífssviðin.

Ef við förum aftanfrá þá fjallar síðasta boðorðið um ágirnd: Þú skalt ekki girnast. Þá horfum við inn í hjartað á hugsanir okkar og langanir. Það ætti ekki að þurfa segja mikið meira um ágirnd. Er það ekki hún sem er orsök fyrir hruninu að menn gáfu sig henni á vald og það sem verra var trúðu því að ágirndin myndi leiða þá til gæfu. Þá kemur boðorðið að bera ekki ljúgvitni. Það er boðorðið um orðin. Mörg eru orðin í nútíma samfélagi og mörg eru þau ósönn og villandi. Samskipti okkar eyðileggjast, mygla og rotna, ef ósannsögli verður venja okkar. Svikaviðskipti brjóta niður traustið í samfélaginu. Svo komum við að  boðorðinu um verkin: Þú skalt ekki stela. Brotið er gróft og augljóst en margslungin er þjófnaðurinn í samfélagi okkar. Andstæðan við þjófnað er heiðarleiki. Það kennir þetta boðorð og besta meðalið gegn því að stela  er örlæti, að gefa af sér, gefa með sér, deila því sem Guð hefur veitt mann af örlæti sínu. Þannig getum við haldið áfram. Svo halda boðorðin áfram og beina athygli okkar að samböndum okkar við maka og náunga okkar, um trúnað og svik. Svo beina þau athygli okkar inn á við, að kjarna lífsins, Guði. Guð birtist okkur í samviskunni. Það er mesti kjarkur sem maður getur sýnt að horfast í augu við sjálfan sig eða öllu heldur að skoða sig í ljósi Guðs. En það dugar ekki! Nema til að vekja okkur til lífsins.

4.

Lífið er fólgið í öðru og meira en boðorðunum. Þá komum við að tvöfalda kærleiksboðorðinu: Elskaðu Guð og náunga þinn. Í guðspjalli Lúkasar fylgir dæmisaga Jesús um miskunnsama Samverjann. Dæmisagan sú er kristin siðfræði í hnotskurn. Hún er lýsandi dæmi um kristið siðferði. Og við megum gjarnan hafa hana sem mælikvarða á raunveruleikann og kirkju og kristni, presta, djákna og organista, og okkur sjálf.

Kristur er Samverjinn sem kemur til hjálpar, fyrirmyndin og ljósið í myrkrinu.

Dæmisagan birtir okkur kærleika Guðs, svona er hann. Kirkjan ber ekki Kristi vitni nema hún sé eins og miskunnsami Samverjinn. Jesús endar nefnilega dæmisöguna með því að spytja lögvitringinn: "Hver þessara þriggja sýnist þér hafa reynst náungi þeim manni sem féll í hendur ræningjunum?" Hann svara þá: "Sá sem miskkunnarverkið gerði á honum." Jesús segið þá við hann: “Far þú og ger hið sama!”

Kristin trú er ekki falleg orð eða hugmyndir heldur sannleikurinn um Guð, kærleikur hans, framkvæmdur í mannlegum samskiptum. Við erum vakinn upp úr draumaheimi og sett inn í veruleikann, þau samskipti sem við lifum í okkar raunverulega lífi. Guð segir við okkur: Elskaðu náunga þinn eins og Kristur gerði!

Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum anda. Amen