Sálmabók

114. Af hjartans rót ég þakka þér

Af hjartans rót ég þakka þér
hið þunga stríð til frelsis mér
og dapran krossins dauða þinn,
þú dýrsti' og besti vinur minn.
Þín heilög elska höndli mig
og haldi mér svo fast við sig
að eigi ég um eilífð þig.

T Björn Halldórsson – Sb. 1886
L Hohenfurth um 1450 – Horn 1544 – Sb. 1589
In natali Domini / Da Christus geboren var / Singen wir aus Herzensgrund
Sálmar með sama lagi 148 298 412 432b 98
Eldra númer 575
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is