Sálmabók

457. Vort traust er allt á einum þér

1 Vort traust er allt á einum þér,
vor ástarfaðir mildi.
Þín náð og miskunn eilíf er,
það alla hugga skyldi.

2 Þú ert vor stoð og einkahlíf
svo engu þurfum kvíða,
vor huggun, athvarf, ljós og líf.
Æ, ljúft er því að stríða.

3 Í hverju sem að höndum ber
og hvað sem bágt oss mætir
þín hjálp oss nálæg ætíð er
og allar raunir bætir.

4 Þín forsjón vakir yfir oss,
þín alvöld hönd oss leiðir,
þú linar böl og léttir kross
og lífsins meinum eyðir.

5 Þú græðir hjartans sviðasár,
þú syndir fyrirgefur,
þú stöðvar öll vor angurstár,
þú alla náð umvefur.

6 Þín föðurnáð æ fersk og ný
oss föðurgæðum seður
og lífsins kjörum öllum í
oss annast, blessar, gleður.

7 Vort traust er allt á einum þér
því allt þú gott oss veitir.
Þín náð og miskunn eilíf er,
þú öllu' í sigur breytir.

T Páll Jónsson – Sb. 1871
L Wormodsen 1539 – Thomissøn 1569 – Gr. 1594
Gud Fader udi Himmerig / Lad vaje højt vort kongeflag
Sálmar með sama lagi 530a
Eldra númer 10
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is