Sálmabók

530a. Vertu, Guð faðir, faðir minn

1 Vertu, Guð faðir, faðir minn
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn
svo allri synd ég hafni.

2 Höndin þín, Drottinn, hlífi mér
þá heims ég aðstoð missi
en nær sem þú mig hirtir hér
hönd þína' eg glaður kyssi.

3 Dauðans stríð af þín heilög hönd
hjálpi mér vel að þreyja,
meðtak þá, faðir, mína önd,
mun ég svo glaður deyja.

4 Minn Jesú, andlátsorðið þitt
í mínu hjarta' eg geymi,
sé það og líka síðast mitt
þá sofna' eg burt úr heimi.

T Hallgrímur Pétursson Ps. 44
L Wormodsen 1539 – Thomissøn 1569 – Gr. 1594
Gud Fader udi Himmerig / Lad vaje højt vort kongeflag
Sálmar með sama lagi 457
Tilvísun í annað lag 531
Eldra númer 373
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is