Sálmabók

570. Lát mig starfa, lát mig vaka

1 Lát mig starfa, lát mig vaka,
lifa meðan dagur er.
Létt sem fuglinn lát mig kvaka,
lofsöng, Drottinn, flytja þér
meðan ævin endist mér.

2 Lát mig iðja, lát mig biðja,
lífsins faðir, Drottinn hár.
Lát mig þreytta, þjáða styðja,
þerra tár og græða sár,
gleðja' og fórna öll mín ár.

T Jeanna Oterdahl, 1915 – Margrét Jónsdóttir – Sb. 1972
Låt mig leva, låt mig verka
L Anfinn Øien 1967 – Sb. 1997
Brød for verden lot du vokse
Sálmar með sama lagi 101
Eldra númer 366
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is