Kirkjuþing heldur áfram

9. mars 2021

Kirkjuþing heldur áfram

Bjalla kirkjuþings - gefin 1985

Kórónuveirufaraldurinn hefur mótað störf kirkjuþings 2020 sem sett var í september sl. Síðasti fundur var fjarfundur. Nú hafa hafa reglur um fjöldatakmörkun og nálægðarbann verið rýmkaðar eins og öllum er kunnugt um. Þess vegna hefur Drífa Hjartardóttir, forseti kirkjuþings, kallað kirkjuþing saman til að halda áfram störfum sínum þar sem frá var horfið í nóvember.

Föstudaginn 12. mars verður 9. fundur kirkjuþings 2020 settur á Grand Hotel Reykjavik, kl. 10.00. Þingið stendur fram eftir laugardeginum.

Fyrir þinginu liggja þrjár sérstakar kynningar

Sr. Gísli Jónasson, prófastur í Reykjavíkurprófastdæmi eystra, kynnir á föstudeginum drög að starfsreglum um prófasta.

Þá mun Margrét Eggertsdóttir kynna starf nefndar sem unnið hefur að endurskoðun starfsreglna um kjör til kirkjuþings, og starfsreglur um kosningu biskups Íslands sem og vígslubiskupa.

Á laugardeginum mun dr. Bjarni Snæbjörn Jónsson, ráðgjafi, kynna stefnumótunarvinnu þjóðkirkjunnar.

Nokkur mál liggja eftir óafgreidd og þau eru:

4. mál. Tillaga til þingsályktunar um samskipta- og siðareglur þjóðkirkjunnar.
Flutt af biskupi Íslands. (Allsherjarnefnd).

9. mál. Tillaga að starfsreglum um breytingar á ýmsum starfsreglum kirkjuþings samkvæmt heimildum í lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, með síðari breytingum. Bandormur. Flutt af forsætisnefnd (Allar nefndir).

13. mál. Tillaga til þingsályktunar um kaup og sölu fasteigna. Flutt af kirkjuráði. (Fjárhagsnefnd).

15. mál. Tillaga til þingsályktunar um breytingu fasteignastefnu þjóðkirkjunnar. Flutt af kirkjuráði. (Fjárhagsnefnd).

17. mál. Tillaga að starfsreglum um ráðningu í prestsstörf. Flutt af Bryndísi Möllu Elídóttur, Skúla S. Ólafssyni, Hreiðari Erni Zoëga Stefánssyni, Örnu Grétarsdóttur, Guðrúnu Karls Helgudóttur og Hildi Ingu Rúnarsdóttur. (Löggjafarnefnd).

19. mál. Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um val og veitingu prestsembætta nr. 144/2016, með síðari breytingum. Flutt af forsætisnefnd (Var í bandormi) (Allar nefndir).

22. mál. Tillaga að starfsreglum um Skálholtsstað. Flutt af vígslubiskupnum í Skálholti. (Löggjafarnefnd).

25. mál. Tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu þjóðkirkjunnar í málum fólks á flótta og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Flutt af biskupi Íslands. (Allsherjarnefnd).

28. mál. Tillaga til þingsályktunar um heimasíðu og aðra miðla. Flutt af Hreini S. Hákonarsyni. (Allsherjarnefnd).

34. mál. Tillaga að starfsreglum um starfskostnað vegna prestsþjónustu og prófastsstarfa. Flutt af biskupi Íslands. (Fjárhagsnefnd).

Streymt verður frá fundum kirkjuþings en ekki frá kynningunum þremur. 

Af fundum kirkjuþings 2020 í september

Af 7. og 8. fundi kirkjuþings 2020 í nóvember

Málaskrá kirkjuþings 2020

Kirkjuþingsfulltrúar

hsh

  • Menning

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Þing

  • Viðburður

  • Frétt

Hildur Björk Hörpudóttir

Sr. Hildur Björk ráðin

22. nóv. 2024
...prestur við Glerárkirkju
Halldór Bjarki Arnarson

Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma

22. nóv. 2024
... Halldór Bjarki Arnarson semballeikari
Kári Þormar og Hólmfríður Jóhannesdóttir

Heiðursgesturinn átti 80 ára fermingarafmæli

21. nóv. 2024
...fermingarafmælishátíð í Hafnarfjarðarkirkju