Hinn sanni tónn
Jarðarför, guðsþjónusta eða sveitabrúðkaup. Hlý og björt mynd, séríslenskt myndefni, sem kallar fram góðlátlegt bros og vekur um leið hjá manni hlýjar minningar um bjart og gott sumar og sól. Í augum kvikmyndagerðarmanna virðist þetta hrífandi myndefni, kannski hinn sanni íslenski tónn!
Sjöfn Jóhannesdóttir
23.9.2008
23.9.2008
Pistill
Ha, ég. Hvað get ég gert?
Hvers konar maður er sá, sem ekki bætir heiminn? Þarf hann að vera læs? Eða missti hann af tækifærum?
Axel Árnason Njarðvík
22.9.2008
22.9.2008
Pistill
Regluverkið einfaldað
Hún hefur slegið rækilega í gegn, kvikmyndin Mamma mia! með tónlist sænsku hljómsveitarinnar ABBA. Ég er einn þeirra mörgu sem séð hafa þessa skemmtilegu mynd sem í senn einkennist af litríku umhverfi og líflegri tónlist. Svo er söguþráðurinn um ástina sem snertir alla sem á annað borð hafa lifandi hjarta og sál.
Örn Bárður Jónsson
21.9.2008
21.9.2008
Predikun
Auðlegð andans
Öll þekkjum við sálminn um hirðinn sem leiðir og huggar, styður og verndar. Lifandi lýsing á traustu sambandi Guðs og manns. Eitt er að þekkja, kunna og vita – hitt er að reyna, finna og sjá.
Stefán Már Gunnlaugsson
21.9.2008
21.9.2008
Predikun
Afskiptaleysi er andstæða kærleikans
Afskiptaleysi er það versta, sem við getum boðið fjölskyldu okkar upp á. Maður nokkur að nafni Eli Wiesel, rúmenskur gyðingur, rithöfundur og nóbelsverðlaunahafi, sem hnepptur var í varðhald af nasistum í seinna stríði, og lifði af hörmungar helfarar, lét eitt sinn hafa eftir sér að hatrið væri ekki andstæða kærleikans heldur afskiptaleysið.
Bolli Pétur Bollason
21.9.2008
21.9.2008
Predikun
Öldurótið í viðskiptalífinu og hin æðstu gildi
Fyrst tilraun til spámennlegrar prédikunar út frá þróun hagkerfisins og siglingu þjóðarskútunnar. Þá samanburður við þann fjársjóð sem við eigum í æðstu gildum og kærleiksboði Jesú Krists. Dæmi af söfnun fyrir mænuskaðaða og öðrum alvöru verkefnum í anda hinnar kristnu þjóðar. Hvað hefur hún fyrir stafni? Getur þessi þjóð endalaust sett Drottinn alsherjar út á spássíurnar?
Kristján Björnsson
21.9.2008
21.9.2008
Predikun
Verum ávallt glöð
Páll postuli hefur nú ekki vitað um kreppuna á Íslandi 2008 þegar hann sagði okkur að vera alltaf glöð. Væri ekki nær að hvetja okkur öll til að vera ábyrg, sparsöm og skynsöm? Eigum við ekki að vera áhyggjufull og leið?
Sigrún Margrétar Óskarsdóttir
19.9.2008
19.9.2008
Pistill
Trúarlega víddin í fjölmenningarfærninni
Í nýlegri bók sem er gefin út af Evrópuráðinu og fjallar um fjölmenningarfærni og fjöltrúarlegan veruleika í skólum er leitast við að varpa ljósi á þá áskorun sem felst í því fyrir skólayfirvöld að taka þennan veruleika alvarlega.
Pétur Björgvin Þorsteinsson
18.9.2008
18.9.2008
Pistill
Að dvelja í Drottni
Stundum er líkt og eitt orð úr einhverri frásögn Biblíunnar tali sérstaklega inn í líf þess sem les. Þá er gott að leyfa því orði að dvelja með sér, sökkva inn í vitund sína og fylla lífið merkingu og nánd.
María Guðrúnardóttir Ágústsdóttir
17.9.2008
17.9.2008
Pistill
Frá pari til fjölskyldu
16. september skipar ákveðin sess í lífi okkar hjóna. Þetta var síðasti dagurinn áður en við höfðum formlega myndað fjölskyldu. Þennan dag fyrir sautján árum vorum við par. Degi síðar vorum við orðin fjölskylda.
Skúli Sigurður Ólafsson
16.9.2008
16.9.2008
Pistill
Sætaskipan í heimi öreinda
Möguleikar mannsins eru miklir til þess að reyna að skilja og átta sig á tilurð alheimsins og má sjá í þeirri viðleitni þá sammannlegu löngun að reyna að skilja grunnforsendur lífs, veruleikans sem á sér bæði upphaf og endir. Vísindamaðurinn reynir að lýkja eftir Miklahvelli sem talinn er af sumum marka upphaf alheimsins meðan listamanninn leitast við að fanga tilfinningar.
Bryndís Malla Elídóttir
14.9.2008
14.9.2008
Predikun
Hin sönnu verðmæti
Hver eru hin sönnu verðmæti þessa lífs? Gull, silfur eða brons? Viska, hyggindi, hreinskilni, það að gæta breytni sinnar, lítillæti, hógværð, þolinmæði, langlyndi, kærleiki, von, virðing eða trú?
Sigurður Arnarson
14.9.2008
14.9.2008
Predikun
Færslur samtals: 5872