Sálmabók

182. Ó, Jesú, lífsins blessað brauð

Ó, Jesú, lífsins blessað brauð,
æ, bæt þú mína sálarnauð
svo vissa von þess eigi' eg
að máltíð þá sem eilíf er
með englum Guðs og sjálfum þér
á himnum halda megi' eg.

T Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
L Þýskt lag um 1504 – Nürnberg 1534 – Sb. 1589
„Kommt her zu mir” spricht Gottes Sohn
Sálmar með sama lagi 302 387 666 82
Eldra númer 239
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Jóh. 6.35, 1. Kor. 10.16b–17

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is