Sálmabók

387. Þú, Guðs kennimann

1 Þú, Guðs kennimann, þenk um það,
þar mun um síðir grennslast að
hvernig og hvað þú kenndir,
að lærisveinum mun líka spurt
sem lét þitt gáleysi villast burt.
Hugsa glöggt hvar við lendir.

2 Jesús vill að þín kenning klár
kröftug sé, hrein og opinskár,
lík hvellum lúðurs hljómi.
Launsmjaðran öll og hræsnin hál
hindrar Guðs dýrð en villir sál,
straffast með ströngum dómi.

3 Ó, Jesú, láttu aldrei hér
anda þinn víkja burt frá mér,
leið mig veg lífsins orða
svo hjartað bæði og málið mitt
mikli samhuga nafnið þitt,
holds girnd og hræsni forða.

T Hallgrímur Pétursson Ps. 10
L Þýskt lag um 1504 – Nürnberg 1534 – Sb. 1589
„Kommt her zu mir” spricht Gottes Sohn
Sálmar með sama lagi 182 302 666 82
Eldra númer 266
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is