Trú.is

Láttu ekkert ræna þig gleðinni

Hryggð er hluti lífsins. Við finnum til þegar við missum þau sem okkur eru kær eða þegar aðstæður verða okkur andstæðar á einhvern hátt. En loforð Jesú er óhagganlegt: Hryggð yðar mun snúast í fögnuð.
Predikun

Það sem aldrei bregst

Hugir okkar og fyrirbænir eru með fólkinu sem glímir við afleiðingar eldgossins og öskufallsins. Hamfarirnar ógna nú allri lífsafkomu og framtíð þessa fólks.
Pistill

Kindur eru ekki heimskar

En rollur eru ekki heimskar, þær eru bara dæmalaust sjálfhverfar og agalausar, það er fátt sem reynir meira á þolinmæðina en að reka fé af fjalli, stjórnlaust hleypur það undan manni og getur jafnvel fremur valið að steypast fram af bjargbrún en að fylgja vegi smalans. En það orsakast ekki af heimsku heldur sjálfskaðandi þrjósku og vantrú.
Predikun

Saga þernunnar

En þegar eitthvað snertir okkur, snertir raunverulega við okkur, þá höfum við skoðanir og margir hrópa á torgum þegar kennivaldi þeirra er ógnað líkt og þegar rætt hefur verið um réttindi kvenna í ákveðnum kirkjudeildum, prestsvígslu jafnvel og réttindi samkynhneigðra svo eitthvað sé nefnt. Þá erum við fljót að veifa kennivaldinu í óttablandinni lotningu og berja fólk með því miskunnarlaust.
Predikun

Að fylgjast með sínu fé

Svo virðist sem fjárhirðar bankakerfisins hafi brugðist í hlutverki sínu. En það er óhugsandi að bóndinn undir Eyjafjöllum pakki bara saman og skilji skepnurnar sínar eftir úti á víðavangi í öskufallinu eða lokaðar inni fóður- og vatnslausar. Þeir fjárhirðar bregaðst ekki. Og þannig hirðir er Drottinn Guð. Setjum traust okkar á hann.
Predikun

Siðgæði

Siðgæðið gengur út frá því að við séum samferða, saman í því að takast á við vandkvæðin og viðfangsefnin, saman í því að komast upp og út úr vandkvæðum og áfram til góðs fyrir lífið og heiminn.
Pistill

Fé án hirðis.

Meira að segja þjóðkirkjan brást. Því þó að kirkjan hafi oft haft uppi mótmæli gegn græðgi og hroka samfélagsins í orði, þá naut hún einnig góðs af gjöfum og styrkjum og vináttu við féhirðina, útrásarvíkingana, auðmennina. Og tók þeim og skjalli þeirra oft fagnandi. Gleymum því ekki.
Pistill

Það sem gerir okkur reið

Skýrslan er birt. Nú rennur upp tími aðgerða. Það dugar ekki að setja plástur á sár þjóðar sem blæðir vegna ábyrgðarlausrar framgöngu og brotins trausts.
Pistill

Nú er lag

Skýrslan alræmda virðist góð. Í henni koma fram hlutir sem skipta máli. Samtöl eru rakin, atburðir skráðir og viðtöl birt. Hrun efnahagslífs og siðferðis er tekið alvarlega og talað er tæpitungulaust.
Pistill

Hin góða regla skaparans

Mælikvarðinn sem lagður er á hvaða kröfur lífsins eru réttmætar og hverjar ekki og hefur Guð sem hulinn höfund sinn, er hverjum manni aðgengilegur í hugmyndum um réttlæti. Hvað er réttlæti? Kjarni réttlætis á ávallt og alls staðar er umhyggjan um náungann.
Pistill

Friður sé með yður

Friður Guðs felst í jafnvægi og réttlæti. Þegar við göngum héðan eftir messu skulum við hugleiða trú okkar og friðinn sem Jesús óskar okkar. Ef við leitum vel finnum við kannski leið til að hnika einhverju réttlætismáli áfram, þótt við frelsum ekki heiminn, eitthvað í vinnunni, skólanum eða heima, eitthvað sem við getum gert til að berjast fyrir því að fleiri fái að njóta friðar.
Predikun