Trú.is

Hvernig falla risarnir?

Hversu oft hafa prestar ekki predikað hófsemi, auðmýkt og þjónustu í gegnum tíðina? Er ekki veruleikinn sá að hátterni sem fellur að boðun Krists er í fullu samræmi við það sem er eðlilegt og um leið árangursríkt innan sköpunarverksins?
Pistill

Hverjum trúirðu?

Boðskapur upprisunnar hvetur okkur til umhugsunar um trú okkar. Hverju trúum við? Eða kannski er betra að spyrja: Hverjum trúirðu?
Pistill

,,Þegar ég mæti Jesú“

,,Þegar ég prédika, er ég alltaf með bara einn texta, en textinn er sá: «þegar ég mæti Jesú», og þaðan koma allar hugmyndir og hugleiðingar sem ég verð að deila með fólki“ : sagði Sojourner Truth.
Predikun

Hernaður er hugleysi

Hún hefur ólgað í mér reiðin síðan ég sá upptökuna af ódæði bandarísku hermannanna í Bagdad frá árinu 2007. Flestum er okkur eins innanbrjósts. Þarna urðum við vitni að þeirri þjálfuðu afmennskun sem er hluti af hernaðarmenningunni.
Pistill

Með nóttina í augum

Við sem þjóð undanfarin ár stóðum okkur að því að einblína á vöxt þess máttuga og stóra og neituðum okkur um að horfa á upphaf þess. Við gleymdum að hlúa að hinu smáa til að það gæti einhvern daginn orðið stórt. Við byrjuðum á öfugum enda.
Predikun

Devika

Devika er 22 ára, einstæð móðir og fyrrum barnaþræll sem Social Action Movement (SAM) á Indlandi leysti úr skuldaánuð. Hún hafði ætlað að klára tólfta bekk sem samsvarar stúdentsprófi á Íslandi, en faðir hennar stoppaði það þar sem hann taldi að hún bæði þyrfti ekki á meira námi að halda og gæti hvort sem er ekkert lært. Erfið veikindi settu líka strik í reikninginn.
Pistill

Ei myrkrið vann ljósið

Páskatrúin hefur ekki verið ríkjandi á Íslandi. Við höfum haft meiri trú á dauðanum en lífinu. Sú trú hefur rekið okkur á harðasprett um lífið. Okkur hefur verið talin trú um að nauðsynlegt sé að eignast sem mest meðan kostur er, upplifa sem mest, sanka að okkur sem mestu.
Predikun

Ástarstjarna yfir Litla-Hrauni

Upprisa Jesú Krists er hin stóra opinberun þess að lífið er annars vegar háð fyrirgefningu og hins vegar þakklæti, hvort tveggja myndar súrefni mannlegra tengsla, já þegar öllu er á botnin hvolft, burtséð frá öllum fræðilegum útreikningum hins opinbera, þá er það þetta tvennt, fyrirgefning og þakklæti sem við þörfnumst hér til að byggja upp lífvænlegt samfélag.
Predikun

Lífið er alls ekkert leiðindarspil

Því hamingjan er þar sem við erum stödd hverju sinni. Hún leynist á ótrúlegum stöðum eins og konurnar upplifðu þar sem þér héldu að gröfinni hinn fyrsta páskadagsmorgunn.
Predikun

Andsvar þess góða

Þær komu að gröfinni við sólarupprás, fylgjendur Krists sem þær tilheyrðu, voru í felum, sumir stjarfir af trega og baráttuleysi. Niðurlægingin nísti inn að beini. Meistarinn sem þau höfðu heillast af og trúað á, hafði verið krossfestur ásamt ræningjum.
Predikun

Þetta reddast

Þessar konur létu ekki vonleysið ná tökum á sér, þó ærin ástæða væri til, heldur drifu sig af stað. Þær breiddu ekki upp fyrir haus og sneru sér upp í horn heldur fóru á fætur og gengu út í svala morgunsins. Kannski höfðu þær ekkert val. Kannski var sængin þeirra ekki hlý. Kannski var ekki vel séð að þær lægju fyrir. Kannski var það kærleikurinn sem ýtti þeim af stað.
Predikun

Rennandi vatn

Vatnið og lífið, vatnið og eilífa lífið, eins og vatnið sækir fram, sækir lífið fram. Án vatns visnar allt, og sérhvert lifandi mannsbarn er víst að stórum hluta vatn. Lífið sækir fram, já um það fjalla páskarnir. Dauðinn verður sem raddlaus nótt, með páskum hefur dauðinn misst rödd sína.
Predikun