Trú.is

Brauðið sem vér brjótum

Við getum sem best endurlifað síðustu máltíð Jesú með því að nota sams konar brauð og hann og notið þar með allrar táknhefðar Biblíunnar. Bakstur ósýrðs brauðs er einfaldur og öllum fær. Brauðið er fljótbakað og bragðgott.
Pistill

Baltasar og kirkjulistin

Áherslan er ekki á líkamlega þjáningu hins krossfesta. Við horfum sjö sinnum í andlit manns sem hefur fylgt okkur í 2000 ár og nemum þá píslarsögu sem það segir. Hann horfir á okkur. við horfum til hans.
Pistill

Ilmur elskunnar

María ber fram nardussmyrslin, dýru og sjaldfengnu, og smyr Jesú þeirri dýrð, sem hún á mesta. Hún umvefur Jesú elsku sinni og umhyggju og í þeirri snertingu gefur hún það dýrasta, sem hún á í veraldlegum skilningi.
Pistill

Ég mun fylgja þér í gegnum allt

Sársauki, niðurlæging og dauði einkenndi þessa viku í lífi Jesú. Kirkjuklukkur hljóðna. Sálmar eru sungnir í moll og guðsþjónustur kirkjunnar einkennast af íhugun og bæn.
Pistill

Hósíanna!

Guðspjallið er myndríkt, María smurði fætur Jesú. Hvað gerðist ekki svo í loftsalnum fyrir síðustu kvöldmáltíðina. Jesús sjálfur sat við dyrnar og þvoði öllum lærisveinunum um fæturna. Fótaþvotturinn er fyrirmynd kærleiksþjónustunnar.
Predikun

Pálmi, Starri og mannlífið

Mörgum hættir til að gera Jesú Krist að framlengingu á eigin sjálfi og vilja skikka hann í embætti eigin sendiherra, túlka hann í samræmi við eigin gildi, hugsjónir og viðmið. Á föstunni er tími skoðunar sjálfsins. Pálmi og jafnvel starri eru ljómandi hvatar í sálarvinnu.
Predikun

Heimsendir í nánd?

Gull, silfur, dramb, hroki, príl og stólar eru byggingarefni heimsenda í lífi fólks. Þegar menn verða rangeygir varðandi lífsgæðin smeygir dauðinn sér inn. Biblían bendir á varnir og betri leið.
Predikun

Eyðum kynþáttafordómum áður en þeim vex fiskur um hrygg!

Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti stendur frá og með 15. mars til 23. páskadagsins. Hér á Íslandi verður sérstök uppákoma gegn rasisma haldin þann 18. mars í Reykjavík, Ísafirði og á Akureyri.
Pistill

Ég sakna föstunnar ...

Ég sakna föstunnar, ég sakna þess tíma er hún setti sinn lit á dagana fram að páskum. Á föstunni var lífstakturinn hægari, kirkjan skóp aðstæður til að hugleiða pínu Krists og dauða. Það voru föstumessur í miðri viku í flestum kirkjum þéttbýlisins og þeim var gjarnan útvarpað. Þá var aðeins ein útvarpsrás og þjóðin öll var vör við lestur Passíusálmanna.
Pistill

Ljós og lampi handa fermingarbörnum

Landlæknir hefur varað við notkun ungs fólks á ljósalömpum til sólbaða. Um leið og ástæða er til að taka undir þá viðvörun má minna á bók sem bæði hefur að geyma ljós og lampa. Lampinn sá er að vísu ekki líklegur til brúnku en er hins vegar lykill að menningu okkar og hefur reynst mörgum ljós fyrir sálina.
Pistill

Sólskinsmorgunn á föstu

Nú er það hins vegar orðið svo í þjóðfélaginu að skilin milli gleði og sorgar hafa færst til í umfjöllun manna á meðal. Þannig þykir ekkert tiltökumál að gera grín að alvarlegum hlutum og virðist fátt heilagt lengur í þeim efnum. Svik Júdasar og síðasta kvöldmáltíðin voru sett fram á gaman saman hátt í auglýsingu fyrr í vetur og sjálfsagt þykir að gera grín að fermingu ungmenna eða giftingu brúðhjóna.
Predikun

Samtal við hina þjáðu

Tuttugasta öldin þekkti þjáninguna flestra alda best, listamenn tókust á við hana hver með sínum hætti, ótrúlega oft með því að vísa á samnefnara þjáningarinnar og ímynd hennar, á mann með kross á baki eða hangandi á krossi. Nú virðist eins og allt sé breytt.
Pistill