Trú.is

Hjartsláttur þinn

Andi hins krossfesta og upprisna vill og getur ummyndað lífið allt og samfélag manna birtu og fegurð fyrirgefningar, lífs og vonar. Og framtíðin svo óræð og myrkri hulin sem hún er, nei, þar kemur hinn upprisni á móti þér með morgunbirtu sína og fegurð. Heyrum við ekki okkar eigin hjartslátt í þeim boðskap?
Predikun

Upprisa þjóðar

Við Íslendingar þurfum kraftaverk eins og þetta. Við þurfum hjálp við að lyfta þessum þunga steini sem hefur verið lagður yfir landið okkar. Þessi þungi steinn hefur gert okkur hokin. Við eigum erfitt með að rétta úr okkur, líta upp og horfast í augu við framtíðina.
Pistill

Syndin

Jesús er ekki siðavandur móralisti. Víst er hann skorinorður gegn hvers konar spillingu og synd. En hann kemur alltaf fram eins og mildur faðir eða móðir sem elskar barn sitt þótt svo að val þess og ákvörðun sé henni á móti skapi.
Pistill

Föstudagurinn langi ...

Vegur trúarinnar er vegur lífsins og hann liggur á brattann. Enginn kemst hjá því að huga að þeirri slóð, sem liggur frá krossinum og að bjarma páskadagsins, - en það er fyrst handan krossins að reynir á trúna.. Það er sannarlega um mikinn “Heljarkamb” að fara. Okkur má vera ljóst að trúin er að því leyti lífshættuleg, að hún varðar líf og dauða.
Predikun

Verndaðu mig frá því sem ég vil

Til þess að finna hamingjuna þurfum við að leita á réttum stöðum og við þurfum að beita okkur sjálf aga til þess að missa ekki sjónar á markinu. Tvær mikilvægar leiðarstikur vísa okkur meðal annars veginn þangað
Predikun

Jörðin lætur laust

Í næstum eitt og hálft ár hefur umræðan um efnahagshrunið tekið hug okkar allan. Við höfum upplifað langt tímabil, mjög langt, einskonar fimmhundruðfaldan föstudaginn langa. En þá gerist atburður sem breytir öllu. Jörðin opnast og eldur brýst fram, eldtungurnar lýsa upp himininn og fólk flykkist svo þúsundum skiptir til að virða fyrir sér undrið.
Predikun

Vonlaust samfélag?

Saga dymbilviku og páska hittir í mark. Hún hittir í mark vegna þess að hún fjallar um stöðu okkar í lífinu og afstöðuna til samfélagsins. Hún segir sögu samfélags sem er vonlaust og óöruggt en fær hugrekki og trú til að breyta heiminum.
Pistill

Eins og stór fjölskylda

Kristur er líka nýbúinn að þvo fæturna á lærisveinunum sínum, sem er annað tilefni undrunar! Allt er þetta yfirlýsing um það í hvaða anda kirkjan á að starfa.
Predikun

Að miðla virðingu og reisn – baráttan gegn mansali

Mér finnst ég sjá tvennt sem er allra mikilvægast og á færi okkar allra að hafa áhrif á. Það er að berjast gegn annars vegar fátækt og hins vegar fáfræði. Misbeiting og vanvirðing manneskjunnar sprettur oftar en ekki af þessu tvennu.
Predikun

Veislan og aprílgabb trúarinnar

Hvert er, að þínu mati, eftirminnilegasta aprílgabb fjölmiðla í gegnum tíðina? Hvert er eðli aprílgabbs? Og hvernig getur trúin kallað okkur til að hlaupa öfugt aprílgabb?
Predikun

G8 - Valhöll eða paradís

Páskar eru önnur mynd endurnýjunar. Á páskum fagna kristnir menn sigri lífsins. Þar er ekki hrósað sigri hetju sem gengur til orustu heldur þess sem ögrar ofbeldinu með því að leggja niður vopn. Páskar eru hátíð sem hyllir lífið og allt sem stuðlar að eflingu þess. Kristinn upprisuboðskapur gengur út á það að allt verði nýtt.
Pistill

Fyrirgefning eftir Hrun — leið til uppbyggingar?

Fyrir mér setja þessi orð fyrirgefninguna í nýtt samhengi og vekja til umhugsunar. Þau skerpa sýnina á fyrirgefninguna sem félagslegt tengslafyrirbæri sem ætlað er að endurreisa jafnvægi í samskiptum einstaklinga eða í heilu samfélagi.
Pistill